Kennarar óskast fyrir næsta skólaár

Brúarásskóli Fljótsdalshéraði auglýsir stöðu grunnskólakennara

Brúarásskóli sem er lítill samkennsluskóli rúma 20 km frá Egilsstöðum auglýsir tvær stöður grunnskólakennara. Leitað er eftir kennurum í raungreina- og tungumálakennslu í efri bekkjum og sérkennslu. Á undanförnum árum hefur skólinn unnið að markvissri skólaþróun. Viðkomandi þarf að vera tilbúinn að koma að kennslu í flestum greinum og hafa áhuga og vilja til að taka þátt í þróunarstarfi skólans um breytta kennsluhætti sem og öðrum verkefnum. Þekking og reynsla í upplýsingatækni er mikilvægur kostur og æskilegt væri að viðkomandi gæti komið að umsjón heimasíðu skólans. Leitað er að jákvæðum og lausnamiðuðum einstaklingi.  Ráðið verður tímabundið í stöðurnar til eins árs með möguleika á fastráðningu.

Launakjör eru í samræmi við kjarasamning Félags grunnskólakennara  og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsókn sendist á Fljótsdalshérað Lyngási 12, 700 Egilsstaðir eða á netfangið stefaniam@egilsstadir.is í síðasta lagi 20. apríl næstkomandi.

Allar nánari upplýsingar veitir skólastjóri, Stefanía Malen Stefánsdóttir, gsm: 8616510  og á netfangið stefaniam@egilsstadir.is. Nánari upplýsingar um skólann má finna á  http://www.bruaras.is