Vorverk

Í næstu viku hefjast vorverkin. Þá er nemendum skipað í 3 hópa þar sem nemendur í hópnum vinna saman. Skólinn er búinn kl. 14:00 á daginn og fara nemendur þá heim með skólabílum.

Gott er að huga vel að klæðnaði barna í vorverkunum.

Eftir slétta viku þriðjudaginn 26. maí hefjast vorverkin okkar. Skólinn mun hefjast á sama tíma og venjulega en skóladagurinn styttist um klukkustund og heimferð því kl. 14:00 og þar af leiðandi engin miðdegishressing. Opnunartími leiksskólans breytist þó ekkert.

Í vorverkunum vinnum við saman þvert á aldur í ýmsum hópum og í mismunandi verkefnum. Vonandi kemur góða veðrið til okkar þessa daga sem verða samtals 8 talsins að meðtöldum fimmtudeginum 4. júní þar sem áætlað er að fara í vorferðina okkar. Skólaslitin verða svo daginn eftir þann 5. júní kl. 13:00.