Farið var í vorferð á Norðfjörð þann 4. júní sl. Fyrst skoðuðum við snjóvarnargarðana í Neskaupstað. Þar tóku Viðar og Logi í Héraðsverki á móti okkur. Viðar sýndi okkur ýmsar teikningar af snjóflóðagörðunum og ræddi um hve miklu máli rúm-og flatarmál skipti í vinnu við garða sem þessa. Okkur var keyrt um í rútunni þar sem við fengum að skoða snjóflóðagarðana ofan frá.
Næst var ferðinni heitið í safnahúsið og sáum þar málverkasýningu Tryggva Ólafssonar og minjasafnið um skip, eldsmiðju og skósmíðaverkstæði. Efst uppi er gríðarlega flott fugla-og steinasafn.
Við grilluðum hamborgara í fjörunni fyrir utan safnahúsið. Þar fundu nemendur marga hryggleysingja og gátu borið það sem fyrir augu bar við þá þekkingu sem þeir höfðu aflað sér í brúarverkefninu um hryggleysingja. Að lokum skelltu nær allir sér í sund í Stefánslaug.
Ferðin heppnaðist mjög vel. Þannig lauk síðasta formlega skóladeginum hjá nemendur, áður en þeir mættu á skólaslitin daginn eftir.