Þorsteinn Ivan Íslandsmeistari

Þorsteinn Ivan Bjarkason nemandi í 8. bekk í Brúarásskóla varð Íslandsmeistari í Bogfimi á mótinu sem haldið var í Bogfimisetrinu Dugguvogi helgina 17.-19. mars.

Þorsteinn bætti metið í sínum flokki um 30 stig. Hann fékk 572 stig af 600 og nældi sér þannig í Íslandsmeistaratitil sveigboga karla undir 15 ára.