Þorrablót og skíðaferð

Þorrablót var haldið í skólanum föstudaginn 20. janúar sl. Boðið var upp á alls kyns gerðir af þorramat og borðað var inn í sal. Nemendaráð skólans sá um leiki fyrir nemendur. Nemendur og starfsmenn dönsuðu gömlu dansana fram að skólalokum þann daginn.

Myndir frá þorrablótinu eru að finna hér - Þorrablót 2026

Farið verður í skíðaferð fimmtudaginn 5. febrúar nk. og verður það í fyrsta skiptið í langan tíma sem það tekst að fara á þeim degi sem ráðgert var að fara í ferðina.