Styttist í skólabyrjun

Ágústmánuður er hafinn og því styttist óðfluga í skólabyrjun. Kennarar eru að vinna í undirbúningi og endurmenntun fyrripart mánaðarins og síðan hefst leikskólinn mánudaginn 17. ágúst og foreldradagur grunnskólans er þriðjudaginn 25. ágúst. Þá koma foreldrar og nemendur saman í skólann og fá kynningu á skólastarfinu. Skólabílar ganga síðan miðvikudaginn 26. ágúst.