Spurningakeppni grunnskólanna

Liðið okkar keppti í 16 liða úrslitum í dag, við lið Laugalækjarskóla í Reykjavík. Keppnin fór fram í gegnum Skype og var jöfn og spennandi. Leikar fóru þannig að Brúarásskóli tapaði með eins stigs mun, 10-11. Þau stóðu sig samt alveg frábærlega vel, höfðu engan undirbúningstíma og Örn kom bókstaflega hlaupandi af flugvellinum til að taka sæti sitt í liðinu. Til hamingju með árangurinn Örn, Lára og Dvalinn (sem kom inn sem varamaður fyrir Aron Tenerífefara).