Skólabyrjun

Nú er nýtt skólaár hafið í leikskólanum okkar og í þessari viku mæta grunnskólabörnin einnig. 

Gaman er að segja frá því að í vetur verða 9 börn í leikskólanum frá 1 árs til 5 ára svo það verður mikið fjör hér alla daga :) Það eru komnar nokkrar myndir inn og svo fáum við nýja myndavél von bráðar því okkar gamla gaf upp öndina á vordögum. Verðum því duglegri að setja inn myndir í vetur úr nýrri vél.