Sigurvegarar í austurlandsriðli í Skólahreysti 2017!

Brúarásskóli vann austurlandsriðil í Skólahreysti í ár en fyrir hönd Brúarásskóla kepptu Arna Skaftadóttir, Hólmar Logi Ragnarsson, Sigríður Tara Jóhannsdóttir og Styrmir Freyr Benediktsson, varamenn voru Arney Ólöf Arnardóttir og Mikael Helgi Ernuson. 

Þau stóðu sig ótrúlega vel og fengu 40 stig samtals. Arna Skaftadóttir gerði flestar armbeygjur í austurlandariðli í ár en þær voru 45. 


Við hvetjum alla til að horfa á krakkana okkar keppa í Laugardagshöllinni þann 26. apríl.

Áfram Brúarás!

Myndir af keppninni fyrir austan má sjá hér.