Síðasta vikan

Fjórar vinkonur
Fjórar vinkonur

Unglingarnir eru fjarri góðu gamni þessa vikuna, þau eru í starfsfræðslu víðs vegar um héraðið. Þau yngri eru búin að vinna eins og forkar, þau hafa búið til veggmynd úr ull og tré, sett niður kartöflur og grænmeti, og málað tótemsúlur sem verða settar upp við skólann. (Í dag, föstudag, er svo verið að búa til steinaþorp og planta trjám, myndir af því koma eftir daginn). 
Veðrið hefur nú verið frekar hráslagalegt, en í dag, föstudag er bjart og milt. Þetta eru góðir dagar.

Myndir: Ullarþæfing, tótemsúlur, kartöflur