Rúmmetri af snjó

Í ljósi þess að krakkarnir í 6.-7. bekk voru að ljúka við rúmfræðikafla í stærðfræði ákváðum við að fara út og spreyta okkur í rúmfræðiþraut með snjóinn. Einu leiðbeiningar sem krakkarnir fengur var að gera rúmmetra úr snjó. Þau voru afskaplega dugleg að vinna saman og kom þetta virkilega vel út hjá þeim. Myndir má sjá hér.