Páskaungar í Brúarásnum.

Það er vor í loftinu hjá okkur í Brúarásnum og styttist í páskana. Í ár fáum við enga hænsnaunga heldur bara kanínuunga sem vekja mikla lukku hjá börnunum. 
Í síðasta mánuði komu tveir kanínuungar í heiminn og í dag bættust fjórir við! Krakkarnir eru ofsalega glaðir með þetta en við ætlum að fá sérfræðing í að kyngreina kanínur fyrir okkur héðan í frá.