Skólahaldi aflýst mánudaginn 2. mars

Því miður er óumflýjanlegt að aflýsa öllu skólahaldi í Brúarási á morgun sökum veðurspár en hún gerir ráð fyrir að veðrið verði afleitt í fyrramálið en versni svo enn meir þegar líður á daginn. Sem betur fer er allt útlit fyrir að skólahald geti verið með eðlilegum hætti þá mikilvægu daga sem við eigum framundan við árshátíðarundirbúning.