Litlu jólin 2017

Litlu jólin Brúarásskóla voru haldin hátíðarleg í ár eins og oft áður. Nemendur léku í ýmsum leikritum, tóku nokkur dansspor bæði í pörum og í kringum jólatréð.
Við þökkum kærlega fyrir árið sem er að líða, það var yndislegt að kveðja það með þessum hætti og við óskum öllum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs.

Sjáumst svo hress á nýju ári!

Myndir úr stofujólum barnanna má sjá hér, en myndir af skemmtuninni sjálfri er hægt að finna hér.