Í síðustu viku voru vorverkadagar með jákvæðu ívafi í skólanum þar sem nemendur tóku þátt í fjölbreyttum og skemmtilegum verkefnum. Dagarnir einkenndust af gleði, samvinnu og jákvæðni þar sem einkunnarorð skólans - Hver og einn er einstakur - var í forgrunni.
Nemendur unnu að gerð jákvæðnisteina sem þeir máluðu í björtum litum og skreyttu með hvetjandi skilaboðum. Þessi fallegu listaverk voru síðan notuð til að skreyta skólalóðina og minna okkur á mikilvægi þess að dreifa gleði og góðvild. Með aðstoð Cricut tækisins bjuggu nemendur einnig til falleg jákvæð skilaboð sem munu prýða veggi skólans.
Nemendur æfðu sig í ýmsum þrautum sem voru í anda Minute to win it. Það er keppi þar sem nemendur reyndu við ýmsar skemmtilegar áskoranir. Nemendur spiluðu borðspil sem þjálfuðu bæði rökhugsun og félagsfærni.
Verkefnin styrktust enn frekar þegar eldri nemendur aðstoðuðu þá yngri, sem undirstrikaði mikilvægi þess að við erum öll einstök og getum lagt okkar af mörkum til að gera samfélag okkar betra.
Jákvæðnisteinar og samvinna