Grænfáninn afhentur í þriðja skiptið

Á þrettándagleðinni kom Freyr Ævarsson fyrir hönd Landverndar og afhenti Brúarásskóla Grænfánann í þriðja skiptið. Skólinn hefur unnið í verkefninu síðan 2008 og er það partur af skólamenningunni hér á Brúarásnum. Okkar markmið eru að vera í miklum tengslum við náttúruna og læra að bera virðingu fyrir henni.