Foreldradagur 24. ágúst nk.

Mánudaginn næstkomandi þann 24. ágúst er svokallaður foreldradagur hér í Brúarási sem markar upphaf skólaársins.

Þann dag mæta nemendur í skólann í fylgd foreldra sinna eða forráðamanna og sitja kynningarfund hjá umsjónarkennara og þeim sem koma að kennslu viðkomandi hóps. Í kjölfarið gefst foreldrum og forráðamönnum tækifæri til að ræða einslega við umsjónarkennara barns síns eða aðra kennara ef þeir kjósa svo.

10:00. 9.-10. bekkkur. Umsjónarkennari: Kristín Högnadóttir

10:30. 6.-8. bekkur. Umsjónarkennari: Þórey Eiríksdóttir

11:00. 1.-5. bekkur Umsjónarkennari: Védís Hrönn Gunnlaugsdóttir

Kennsla hefst svo samkvæmt stundaskrá kl. 8:55 þriðjudaginn 25. ágúst.

Upplýsingar um almenningssamgöngur frá Egilsstöðum og Fellabæ koma síðar.