Foreldradagur í Brúarásskóla

Næstkomandi föstudag 21. ágúst er á dagskrá í Brúarásskóla árlegur foreldradagur fyrir foreldra barna í 1. -10. bekk.

Vegna sóttvarnaraðgerða hefur verið ákveðið að hvert barn komi einungis í fylgd annars foreldris þennan dag og nemendum og foreldrum verður skipt uppí fjóra hópa.

Áætlað er að hver hópur komi saman í íþróttasal í tæplega hálftíma þar sem farið verður yfir vetrarstarfið. Vegna þeirra sérstöku aðstæðna sem eru um þessar mundir neyðumst við til að biðja foreldra að fara ekki víðar um skólann að þessu sinni en nemendur sem eiga systkini geta fengið að leika sér innandyra meðan þau bíða.

Dagskráin er með eftirfarandi hætti.

10:00 1.-3. bekkur
10:30 4.-5. bekkur
11:00 6.-7. bekkur
11:30 8.-10 bekkur

Endilega látið vita ef þið einhverra hluta vegna getið ekki verið með okkur á föstudaginn en annars hlökkum við til að sjá ykkur.
Kennsla hefst svo eftir stundaskrá mánudaginn 24. ágúst.

Kær kveðja

Ásgrímur Ingi