Árshátíðin 6. mars

Árshátíð skólans var haldin þann 6. mars síðastliðinn við mikla ánægju allra viðstaddra.

Húsið var opnað 15:30 og gafst þá gestum tækifæri til að spreyta sig á perum og kaupa sér tombólumiða.

Hápunktur hátíðarinnar var sýning á leikritinu „Það stendur mikið til“ eftir Ingunni Snædal. Nemendur okkar sýndu mikla leikgleði og stóðu sig frábærlega á sviðinu. Það var virkilega ánægjulegt að sjá þann mikla metnað og þá vinnu sem lögð var í sýninguna skila sér í flottum flutningi sem vakti mikla lukku hjá áhorfendum.

Að sýningu lokinni var boðið upp á kjúklinga-og kjötsúpu og brauð. Til að kóróna þennan frábæra dag var slegið upp balli þar sem gestir og nemendur dönsuðu gömlu dansana af miklum móð. Það var yndislegt að sjá alla skemmta sér saman á dansgólfinu.

Takk kærlega öll sem mættuð og gerðuð þennan dag svona ánægjulegan og eftirminnilegan með nærveru ykkar og gleði!