Árshátíð Brúarásskóla 2017

Söngleikurinn Hljómsveitarkeppnin eftir Ingunni Snædal verður sýndur fimmtudaginn 23. mars kl. 17:00. Húsið opnar 16:00 fyrir tombólu og getraunir. Miðaverð 2000 kr. fyrir 12 ára og eldri, 6 til 11 ára borga 500 kr. Kaffi og kökur eftir sýningu. Allir nemendur skólans taka þátt og sjá um tónlistarflutning. Ingunn leikstýrir verkinu og Jón Arngrímsson er tónlistarstjóri. Allir hjartanlega velkomnir. Aukasýning verður þriðjudaginn 28. mars. kl. 17:00