Árshátíð 6. mars

Árshátíð Brúarásskóla verður föstudaginn 6. mars nk. Æfingar á leikritinu hófust í dag. Brýnt er að nemendur æfi sig og læri línurnar sínar í þessari viku. Æfingar í tónlistinni eru löngu hafnar og mikilvægt er að nemendur haldi áfram að æfa sig.

Í næstu viku verður hópastarf þar sem nemendur velja sig í hópa. Unnin eru mismunandi verkefni í hverjum hóp. Lagt er upp úr því að eldri nemendur hjálpi yngri nemendum að vinna verkefnin.