Nýtt skóladagatal komið á heimasíðuna

Nú þegar þetta skólaár hefur runnið sitt skeið er komið að því að kynna skóladagatal næsta vetrar. Skóladagatalið er nokkuð hefðbundið miðað við undanfarin ár en þó má nefna að haust- og vetrarfrí hafa nú verið samræmd í leik- og grunnskólum á Fljótsdalshéraði. Skóladagatalið fyrir veturinn 2023-2024 er að finna undir samnefndum flipa hér á síðunni.